58. fundur
utanríkismálanefndar á 143. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 26. júní 2014
kl. 13:30
Mættir:
Birgir Ármannsson (BÁ) formaður, kl. 13:35Vilhjálmur Bjarnason (VilB) 2. varaformaður, kl. 13:35
Frosti Sigurjónsson (FSigurj), kl. 13:35
Guðlaugur Þór Þórðarson (GÞÞ), kl. 13:38
Óttarr Proppé (ÓP), kl. 13:35
Össur Skarphéðinsson (ÖS), kl. 13:40
Árni Þór Sigurðsson, Ásmundur Einar Daðason og Silja Dögg Gunnarsdóttir voru fjarverandi.
Nefndarritari: Stígur Stefánsson
1619. fundur utanríkismálanefndar
Bókað:
1) Fundur sameiginlegu EES-nefndarinnar 27. júní 2014. Kl. 13:35
Á fundinn komu Bryndís Kjartansdóttir frá utanríkisráðuneyti, Ari Guðjónsson og Hilmar Baldursson frá Icelandair og Björn Ingi Knútsson og Egill Reynisson frá WOW-air.
Gestirnir fóru yfir málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.
2) Önnur mál Kl. 13:56
Fjallað var um:
a. Fund með breskum þingmönnum.
b. Tilskipun 2009/14/EC um innstæðutryggingar.
Fleira var ekki gert.
Fundi slitið kl. 14:20